Bæn hundsins

Hugleiddu þetta áður en þú tekur mig að þér.

Ég lifi varla lengur en 15 ár.
Mér líður illa án þín.
Augu mín og látbragð eru mín orð.
Gefðu mér tíma og svigrúm til að skilja hvers þú ætlast til af mér.
Hrós þitt og umbun er mér sólargeisli, refsing er þungbær.
Reiðstu ekki sakleysi mínu, ég vil þér vel.
Þú átt atvinnu, ánægjustundir og vini. Ég á bara þig.
Talaðu við mig. Enda þótt ég skilji ekki mál þitt, skil ég tón raddarinnar.
Áður en þú slærð mig, mundu að ég get kramið hönd þína, en ég beiti þig aldrei ofbeldi.
Ef þér finnst ég leiðinlegur, vegna annríkis þíns, mundu þá að stundum líður mér líka illa
Annastu mig þegar ég verð gamall, án þín er ég hjálparvana.
Deildu með mér gleði þinni og sorgum.
Veittu mér hlutdeild í lífi þínu, því ég elska þig.

 

 

This entry was posted in Greinar. Bookmark the permalink.

About Guðjón E. Hreinberg

Alinn upp með hundum og hefur lært af færum hundamönnum hérlendis og á Írlandi. Hundahvíslari lætur ávallt hundana hafa síðasta orðið um hvaða aðferð henti best.

Comments are closed.