Hundaþjálfun

Að stunda leitarþjálfun með hundinum sínum er meira gefandi en nokkur önnur íþrótt! Þetta er íþrótt sem allir geta stundað, bæði menn og hundar. Án undantekninga.

Auk þess eru æfingar okkar ókeypis og öllum opnar. Hundasport var stofnað sem umgjörð um þessa íþrótt fyrir leikmenn.  Við æfum vikulega á höfuðborgarsvæðinu og einnig í Eyjafirði.

Í hnotskurn er æfing þannig:

Hundur í víðavangsleit

Þú og hundurinn þinn gangið um víðavang þar sem týnd manneskja felur sig. Þegar hundurinn þinn finnur manneskjuna, lætur hann þig vita. Síðan vísar hann þér á týnda manninn.

Reynsla fólks er oft þannig:

„Þegar ég byrjaði að þjálfa vissi ég lítið um hunda. Hálfu ári síðar tók ég eftir að ég vissi meira en margir sem átt hafa hund árum saman. Ég tók þó ekki eftir að ég lærði það!“

Fyrirkomulag

Á æfingar er frjáls mæting en mælt með því að þær séu stundaðar reglulega. Hafa má samband síma 898-1298 eða síma 615-3998 til að taka þátt.

Á æfingum er leiðbeinandi sem stjórnar æfingunni og leiðbeinir um framfarir hvers hunds. Þáttakendur – og hundar þeirra – eru á eigin ábyrgð á þessum æfingum.

Misjafnt er hvar æft er en reynt að hittast á svæðum sem auðvelt er að finna og þaðan ekið í svæði.

Æfingareglur

  1. Taka leiðsögn vel.
  2. Regluleg mæting skilar árangri.
  3. Hundar eru að upplagi kurteisir og menn temja sér slíkt.

Vinnustefna

Misjafnt er með alla dýraþjálfun hvaða aðferðir eru notaðar. Misjafnt er líka eftir tíðaranda hvernig dýr eru tamin. Oft er blæbrigðamunur í þjálfun sem aðeins reynt fólk sér en skilur oft haf og himinn að.

Þrenns konar stefnur eru helstar í hundaþjálfun:

  1. Áhersla á tækni og tól.
  2. Áhersla á hegðunarmynstur og aðferðatækni.
  3. Sálræn tengsl manns og hunds í takt við hegðun.

Allar aðferðir skila misgóðum árangri í þjálfun og gera misjafnar kröfur til eigenda og þeirra sem leiðbeina. Fyrsta aðferðin er auðveldust og sú síðasta erfiðust. Sú fyrsta gerir minnstar kröfur til eigandans og hentar betur þeim sem hafa lítinn tíma. Síðasta aðferðin gerir mikla kröfu um ástundum eigenda og viðhorf.

 

Tegund æfinga

  • Víðavangsleit
  • Snjóflóðaleit
  • Sporaleit, og blóðhundaleit
  • Hverfaleit
  • Efnaleit

 

Sum okkar æfa allar þessar leitir með sama hundinum, aðrir eru að sérhæfa suma hunda sína. Sá sem þetta ritar er t.d. með tvo hunda í efnaleit, einn í spori og tvo í blöndu af víðavang, spori, hverfum og snjó. Misjafnt er eftir persónuleika hunds og svo aðstæðum eiganda hans til ástundunar hvaða áherslur eru lagðar. Umfram allt skiptir máli að hafa trú á hundinum sínum og hafa gaman af að vinna með honum.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>