Poodle er sérstök hundategund og talin næst greindasta tegundin á eftir Border Collie. Tegundin kemur í þrem stærðum Toy, Miniature og Standard og eru litir mismunandi, þó eru hvítir og svartir algengari.
Upprunalega eru þeir ræktaðir sem vatns-hundar þ.e. þeir eiga auðvelt með að sækja veiðibráð s.s. fugla út í vötn og mýrlendi.
Tegundin á auðvelt með hundakúnstir á borð við hundafimi, hlýðni, spor og jafnvel smölun. Þeir skara fram úr á sýningum vegna þessara eiginleika.



