Þessi námskeið hafa verið haldin síðan 2009 með ágætum. Til samanburðar má segja að tvö helgarnámskeið í röð gefi hundinum jafn mikla kennslu og klassísk hlýðninámskeið sem taka tíu vikur.
Helgarnámskeið eru haldið mánaðarlega í Hafnarfirði – árið um kring. Helgarnámskeið á landsbyggðinni eru haldin á auglýstum stöðum víðs vegar um landið frá maí fram í september.
Fyrir kemur að hópar á landsbyggðinni hafa skipulagt námskeið og pantað leiðbeinanda frá okkur.
Þessi námskeið eru byggð á margra ára reynslu í þjálfun leitarhunda, en við æfum vikulega allt árið.
Hundar sem fá stífa þjálfun á fáum dögum læra hraðar en þeir sem læra einu sinni í viku. Þeir bæta einnig hraðar við sig nýrri þekkingu. Enn fremur gleyma hundar aldrei því sem þeir læra vel á einni helgi.
Nánari upplýsingar gefur Guðjón Elías í síma 898-1298.
Helgarnámskeið kemur þér og hundinum þínum fljótt á sporið …



Er það þá rétt skilið hjá mér að þetta námskeið veitir ekki afslátt af hundagjöldum?
Sum bæjarfélög úti á landi samþykkja námskeiðin. Það vantar enn á höfuðborgarsvæðinu.