Hundanámskeið

Eða Helgar-hlýðninámskeið fyrir hunda

Þessi námskeið hafa verið haldin síðan 2009 með ágætum. Til samanburðar við klassísk hlýðninámskeið myndu tvö helgarnámskeið í röð gefi hundinum jafn mikla kennslu.

Hlýðinn hundahópur

Helgarnámskeið eru í boði á landsbyggðinni og þá haldin á auglýstum stöðum víðs vegar um landið frá vetrarlokum fram í vetrarbyrjun.

Fyrir kemur að hópar á landsbyggðinni skipuleggja námskeið og panta leiðbeinanda frá okkur.

Þessi námskeið eru byggð á margra ára reynslu í þjálfun leitarhunda, sem við æfum vikulega allt árið.

Hundar sem fá létta þjálfun á einni helgi læra jafnan hraðar en þeir sem læra aðeins vikulega. Þeir bæta hraðar við sig nýrri þekkingu og festa betur það sem styrkt er. Enn fremur gleyma hundar aldrei því sem þeir læra vel á einni helgi.

Helgarnámskeið kemur þér og hundinum þínum fljótt á sporið!

Helgarnámskeið I

Þetta er Hundasport er helgarnámskeið og er kennt utandyra.

Kennt er:
Innkall, sitja og liggja, bíða, þægileg taumganga, hælganga, merkjamál hunda og hlýðni.

Kennt er í fimm kennslustundum frá föstudegi til sunnudags. Námsefnið er eingöngu verklegt en fyrir bóklega þekkingu bendum við á greinasafnið okkar.

Á helgarnámskeiði lærir þú alla grunn hlýðni eða um 70% þess sem kennt er á klassískum hlýðninámskeiðum. Margir velja helgarnámskeið til að ná góðum tökum á uppeldinu hratt.

Nauðsynlegt er að hafa með sér góðan taum s.a. 160 sm. langan og nammi sem hundurinn er hrifinn af.

Nánari upplýsingar gefur Guðjón Elías í síma 898-1298 eða í tölvupósti.

Helgarnámskeið II

Þetta námskeið er framhald á Helgarnámskeið I sem er forsenda fyrir þessu námskeiði.

Kennt er:
Upprifjun frá Helgarnámskeið I,  Ganga laus við hlið, Hoppa yfir hindrun, Klifra á bak eigandans, Laga taum við ljósastaur, Standa, Skila hlut við hæl og Skríða undir hné eða hindrun. Þegar tími leyfir er einnig kennt að Stöðva, bæði í innkalli og fráhlaupi.

Þegar þú og hundurinn þinn hafið klárað Helgarnámskeið I og II ættuð þið að kunna meira í verklegum hundakúnsum en kennt er á klassískum námskeiðum, ef undan er skilið bóklegi þátturinn. Sem fyrr segir bendum við á Greinasafnið okkar fyrir bóklegt efni.

Á þessu námskeiði eins og hinu fyrra þarf að hafa með sér góðan taum og nammi sem hundinum líkar.

Nánari upplýsingar gefur Guðjón Elías í síma 778-1296.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>