hundasport.is - Log in
Feed on
Posts

Um dagbókina

Eigandi þessara síðna er Elías Ívarsson sem leiðbeinir á æfingum og námskeiðum hjá Hundasport.

Þetta blogg er að mestu hugsað sem dagbók yfir allt sem ég geri með hundunum mínum – allt sem mér finnst markvert: Fyrir mig, fyrir hundana mína, og fyrir þá sem vilja fylgjast með eða læra.

Ég kynntist hundaþjálfun fyrst hjá fjárhundaþjálfara á Írlandi en ég bjó í sama þorpi sumarið 2002. Þegar ég flutti heim lærði ég af hverjum þeim sem kunni hafði þjálfað og nennti að kenna. Um tíma æfði ég með Björgunarhundasveit Íslands og einnig Leitarhundum Landsbjargar, og lærði margt þar.

Mest hef ég lært af hundunum mínum, sem hafa verið þó nokkrir. Ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi, og hundarnir mínir einnig. Þessar síður er æfingadagbók hundanna minna.

Þá rita ég hér hvaðeina sem hundaþjálfun varðar og að gagni má koma, sem ekki er ritað um á aðal vefnum. Margt sem hér er ritað er þó leiðbeint á æfingum hjá Hundasport og kemur fram í öðru efni þar.

Mínir hundar í dag

  • Ljúfur
  • Salka

Hvers vegna æfingadagbók

Fyrsti hundurinn minn heitir Káta en Rósa systir fékk hana þegar ég eignaðist Ljúf. Þegar ég þjálfaði Kátu á sínum tíma lærði ég margt. Hún er fyrsti hundurinn sem ég þjálfaði markvisst. Fyrst vildi ég kenna henni fullt af hundakúnstum en til lengri tíma litið vildi ég þjálfa víðavangs leitarhund. Káta hefur þegar tekið C próf í snjóflóðaleit og er tilbúin í C próf í víðavang.

Þegar unnið var með uppeldi hennar – og yfirstandandi þjálfun hjá Rósu systir – lærði maður eitthvað nýtt í hverri viku. Oft hugleiddi ég að skrifa vefsíðu – eins konar glósur. Bæði fyrir mig að hafa yfirlit yfir það sem Káta lærði og fann uppá sjálf, einnig fyrir áhugasama að læra af.

Ekkert varð þó af þessu verkefni. Árið 2008 var ég um tíma að æfa hjá Leitarhundum Landsbjargar og lærði þar margt. Einn leiðbeinenda þar benti okkur sem æfðum með henni að æfingadagbók gæti hjálpað okkur með margt varðandi hundana. Þar vaknaði hugmyndin að þessari vefsíðu.

Að blogga um æfingar og þjálfun hundanna minna hefur aukið á fókus og áhuga. Myndi það vafalaust hjálpa
fleirum og er öllum frjálst að opna sínar eigin hunda dagbækur á blog.vinnuhundar.net

Aðrir vefir sem ég kem að

Hafnarfirði, mars 2009, Elías Ívarsson

Share

Leave a Reply

Powered by WP Hashcash