hundasport.is - Log in
Feed on
Posts

Salka

Salka er blendingur af Íslenskum fjárhund, Border Collie og Labrador – eru tvö síðarnefndu genin ráðandi hjá henni og valdi ég hana einmitt til að þjálfa slíka blöndu sem leitarhund.

Salka 2008

Mamma hennar heitir Perla en föðurinn veit ég ekkert um, hún er fædd 9. júní 2008.

Salka var hundur sem ég upphaflega tók fyrir aðra menneskju til uppeldis og grunnþjálfunar, en ég endaði á að sitja uppi með hvolpinn. Hún var valin vegna þess að hún er blanda úr Labrador og Border Collie. Ég er mjög áhugasamur, eftir reynslu mína af leitarþjálfun, að sjá hvernig þessi blanda kemur út og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum. Reyndar er Salka líka með Íslenskan Fjárhund í blóðinu, þrjóskugen sem enginn vill þjálfa til vinnu, en það hefur ekki skaðað.

Ef þú klemmir putta og ert illt í honum, máttu búast við að Salka setjist hjá þér og lækni puttann með tungunni sinni. Ef þér er illt í hjartanu máttu búast við að hún setjist í fang þér og kúri hjá þér í smástund. Hún er heilari í sér og má ekkert aumt sjá. Yfirleitt þurfa hundar um þrjár til fimm endurtekningar til að læra nýja skipun, Salka þarf tvær og ekki hálfri meir. Hins vegar viðheldur hún réttinum – Íslenskur Fjárhundur er afinn – til að ákveða sjálf hvort það þurfi að framkvæma skipunina. Hún veit vel að hún má ekki sofa uppí – henni er kennt það u.þ.b. 3svar á nóttu síðustu tvö árin. En hún veit að foringjanum á ekki að verða kalt!

11042010524

Share

Leave a Reply

Powered by WP Hashcash