Ljúfur
Aug 16th, 2009 by Elías Ívarsson
Ljúfur er hreinræktaður Schaeffer hundur frá Gunnarsholts ræktun. Ættbókarnafn hans er Gunnarsholts Picasso og hann er fæddur 25. júlí 2005.
Ljúfur við Hvaleyrarvatn í mars 2009
Ljúfur við Skjálfanda í ágúst 2009
Ljúfur kom inn í líf mitt þannig að sex heimili höfðu gefist upp á honum eða látið hann fara vegna eigin erfiðleika. Hann var tveggja ára gamall þegar ég fékk sms frá góðum vini: “viltu eignast 2ja ára Séffer rakka, það á að lóga honum á morgun?”. Ég svaraði um hæl “ég vil sjá augnaráðið hans fyrst”. Sama dag hittumst við Ljúfur og höfum verið óaðskiljanlegir síðan.
Hann kunni eina skipun, “Nei”, og var svo þunglyndur að hann gekk um með hangandi haus og feldurinn var mattur, vikum saman. Það tók tvær vikur fyrir hann að læra “sækja” leikinn og hann hafði ekkert sjálfstraust gagnvart öðrum hundum. Í dag er hann langt kominn í víðavangsþjálfun og með góðan grunn í bæði snjóflóðum og spori.
Ljúfur hefur alið upp kettling og síðar tvo kettlinga hennar, hann hefur alið upp fimm hvolpa frá Kátu og tvo hvolpa sem ég hef tekið inn á heimilið (Sölku og Birtu). Hann hefur verndað mennskan hvítvoðung og leyft ótal börnum að hanga í hálsinum á sér. Hann hefur í dag sjálfstraust gagnvart öðrum rökkum og já: hann er faðir 8 hraustra hvolpa.

