hundasport.is - Log in
Feed on
Posts

Birta

Birta er dóttir Ljúfs og Ídu, hún fæddist 29. janúar 2010.

Ída er undan Gjósku Diljá og Ljúfur heitir í raun Gunnarsholts Picasso. Báðir foreldrar eru hreinræktaðir Séffer hundar.

050620101141

Birta kom í hópinn því ég valdi að halda hvolpatollinum en það fæddust 8 heilbrigðir hvolpar í gotinu. Frá því ég fékk Ljúf hefur mig langað að eignast afkvæmi frá honum og var mjög hrifinn af Ídu um leið og ég sá hana með foringja sínum.

Að mínu mati hefur Birta erft margt af því besta frá báðum foreldrum. Hún er mjög greind, fljót að læra og vinna úr því sem hún lærir. Hún er vinnusöm og mjög viljastyrk, allt að því vargur á stundum.

Birta er bara fimm mánaða. Þegar hún kom á heimilið ákvað hún að foringinn væri til að hlýða og kúra hjá, en pabbi sinn (Ljúfur) væri til að elska umfram allt af öllu í heimi hér. Það er eitthvað við pabba hennar, þeir sem kynnast hans rólyndu og hlýju sál, falla fyrir honum. Birta var og er gjammlyndur vargur sem var fyrst út úr búrinu í goti móður sinnar og sá hvolpur sem móðirin reyndi mest að aga. Þegar hún kom á heimilið gjammaði hún út í eitt, það tók hana tvo mánuði að hætta því með mildi. Hún er hrifin af búrinu sínu, elskar pabba sinn, fílar bíltúra, umgengst Kátu af virðingu og leikur út í eitt við Sölku. Hún er skapsterkur og vel greindur hvolpur sem gjammar á foringja sinn í viðleitni til að stýra honum.

Share

Leave a Reply

Powered by WP Hashcash