hundasport.is - Log in
Feed on
Posts

Ég hef átt helling af hundum.

Loppa

Loppa

Ég varði öllum mínum unglings árum hjá Ömmu eftir að Pabbi dó. Þar var Loppa, hún kom þangað sem hvolpur og varð hundgömul. Hún var  duglegur smala hundur og við vörðum heilu dögunum saman á gangi og snuddi í hæðunum í kringum bæinn.

Káta 2007

Svo liðu mörg ár og ég eignaðist Kátu. Við Káta brölluðum margt saman og lærðum margt hvort af öðru. Þá var ég búinn að kynnast Scaeffer hundaþjálfara á Írlandi sem smitaði mig smá og ég kynntist vönum manni í Hafnarfirði sem hafði þjálfað fleiri slíka.

Systir mín tók síðar við Kátu þegar ég eignaðist Ljúf og hún var tilbúin í leitarhundaþjálfun. Káta eignaðist fimm hvolpa 7. desember 2007 og fundu þeir allir góð heimili. Káta fékk að eignast hvolpa því mig langaði að þjálfa dóttur frá henni. Síðar lét ég hvolpinn – Loppu – frá mér og hún fékk gott heimili þar sem hún fékk viðeigandi uppeldi.

Ljúfur 2008

Ljúf eignaðist ég sumarið 2007, alveg óvænt fyrir okkur báða og báðum til blessunar. Hann var þá tveggja ára og hafði lent á flakki milli heimila, honum að ósekju.

Salka 2008

Sumarið 2008 bættist svo Salka í hópinn. Hún er blíður þrumutrukkur.

Share

Leave a Reply

Powered by WP Hashcash