hundasport.is - Log in
Feed on
Posts

Margir hundar

Þeir sem þekkja til vita að þessa dagana er ég með fjóra hunda. Já, fjögur stykki.

Stundum er ég spurður: “Er þetta ekki mikil vinna?” líka  “er ekki erfitt að þrífa?” og svo  “hvernig kemstu í ferðalög?” og að lokum “ætlarðu ekki að fækka þeim?”.

Ég sé þetta ekki svona.

Hvert og eitt þeirra eru einstaklingar með persónuleika. Ég hef haft sum þeirra í fáein ár. Öll hafa þau – nema sú yngsta – farið í gegnum eða eru í þjálfunarferli.

Enginn veit sína ævina, enginn veit hvort hann fær haldið fjölskyldu sinni saman. Sjúkdómar, slys og óvæntir atburðir, gerast í mannheimum og hundheimum. Einnig er til fólk sem vinnur hundum tjón og verða á vegi okkar.

Ég segi því þegar ég er spurður, “er þetta ekki margir hundar?”, “þetta er góð byrjun”. Ég hitti stundum fólk sem hefur átt einn hund og ekki viljað annan vegna sorgar. Ef hundur sem ég elska er frá mér tekinn, fengi ég mér annan strax.

Share

Leave a Reply

Powered by WP Hashcash