hundasport.is - Log in
Feed on
Posts

Styrking

Í dag slepptum ég Sölku, Ljúf og Kátu (sem var í pössun) með öðrum hundum. Hundarnir eru þáttakendur í námskeiðinu sem ég aðstoða hana Heiðrúnu við á Akranesi. Ljúfur ætlaði eitthvað að sperra sig við 10 mánaða Labrador rakka. Hann var svo aðgangsharður að ég varð að skakka leikinni. Ég gekk á milli þeirra og þrumaði á Ljúf: “Í bílinn”! Það var sem við manninn mælt, hann og Salka strunsuðu að bílnum, biðu þar og voru snögg inn í hann þegar ég kom og opnaði.

Káta fékk að leika áfram við hundana og rifja upp nokkrar skipanir frá því ég átti hana. Ég var ekki með hundabúrin í bílnum, svo ég varð að fylgjast vel með Sölku. Hún fattaði nýlega að hún kemst úr skottinu og frammí. Hún er svo dugleg að sniðganga reglurnar. Eftir smá ögun og eftirlit reyndi hún þó að þykjast vera kyrr í skottinu. Eftir námskeiðið fórum við í útivist. Þar styrktum við aðeins “stopp” æfinguna á þeim öllum þrem. Salka á dálítið erfitt með þá æfingu – en í kvöld náði hún að fatta æfinguna. Markmið stopp æfingarinnar er að geta stöðvað hundinn á hvaða hlaupum sem er, hvenær sem er. Hvort sem hundurinn hleypur frá þér, til þín eða hvað sem er.

Share

Leave a Reply

Powered by WP Hashcash