Æfing í kvöld – miðvikudag – í Breiðdal -> sjá www.hundasport.is Við erum svo önnum kafin vegna hundanámskeiðsins og garðsins að við höfum ekki æft markvisst í tvær vikur.
Þó sér maður – eins og ávallt – að daglega vinnan skilar árangri. Yfirleitt hefur stefnan verið sú að mínir hundar læra skipanir í viðrun. Maður fer út með hundana sína í fimm til fimmtán mínútna viðranir allt að sex sinnum á dag. Reglulega – sé maður í góðu skapi – tekur maður fimm til tíu mínútur aukalega og styrkir eitthvað sem þau kunna eða kennir eitthvað nýtt. Smám saman hafa hundarnir vanist því að aldrei er að vita hvenær þau þurfa að leysa þraut. Fyrir vikið eru þau virk og dugleg. Síðast liðinn sunnudag fengu bæði Ljúfur og Salka að umgangast hundana sem eru hjá okkur á námskeiði á Akranesi. Ýmislegt áhugavert kom í ljós: Salka var önnum kafin við að leika – hún er ellefu mánaða Labrador/Border blanda – við tólf aðra hunda. Ég lét mig hverfa og fylgdist með í laumi. Innan tveggja mínútna varð hvolpurinn óróleg. Hún fór að hlaupa á milli fólksins í stað hundanna – hnusaði af fótleggjum þeirra og var frekar óörugg. Ég gekk rólega inn í augsýn, utan við hópinn, innan tíu sekúndna kom hún auga á mig, rauk til mín og fagnaði. Við þetta varð hún róleg á ný og hóf aftur leik við hundana. Hundurinn þinn veit alltaf af þér og þarf á því að halda að vita hvar þú ert. Hefði þetta verið í náttúrunni, bara við tvö á labbi, hefði hún notað nefið til að þefa slóðina mína. Þegar hún verður öruggari í leitar-æfingum mun hún nota nefið við þessar aðstæður líka. Hitt sem gerðist var Ljúfur. Í stað þess að leika við hina hundana – hann er jú miðaldra hundur – var hann upptekinn við að láta aðra rakka vita hver réði. Hins vegar var sama hvar ég var staddur, jafnvel langt frá hópnum, hann gegndi hiklaust hverju innkalli á fætur öðru. Í öllum tilfellum notaði ég flaut sem innkall. Sérstaklega var ég ánægður með síðasta innkallið: Hann var upptekinn af rökkunum og ég var einnig í hópnum. Ég hrópaði svo vel heyrðist “í bílinn”. Það var sem við manninn mælt: Ljúfur hætti öllum leik og skokkaði glaðlega að bílnum, ég á eftir og hleypti honum inn í bíl. Duglegir hundar eru stolt eigendanna.
Smám saman
May 20th, 2009 by Elías Ívarsson