Í kvöld æfðum við hlýðni með Æfingahóp Hundasports.
Ljúfur þekkir allt sem gert var í kvöld, svo hans vinna var aðallega fólgin í að rifja upp og styrkja eldri kunnáttu.
Við æfðum hælgöngu, taumgöngu, uppá bekki, bíða meðan gengið var aftur fyrir, bíða meðan gengið var frá hundi og aftur til baka. Við styrktum flaut innkall og bættum við nýju innkalli: Foringi bíður þess að hundur horfi til sín og leggi af stað í áttina til sín, og heldur þá höndunum láréttum út frá líkama sínum.
Handa innkall getur komið í góðar þarfir þar sem hundurinn sér foringja sinn en er of langt frá til að heyra.
Einnig rifjuðum við upp “stopp” æfingu. Sú æfing getur bjargað lífi hunds ef hann kann að stöðva á punktinum eftir skipun.
Salka hóf sína fyrstu æfingu í kvöld í hælgöngu. Eins og við er að búast af henni var hún fljót að “fatta” til hvers var ætlast. Þá æfði hún að “bíða” og gekk þrusu vel hjá henni. Einnig styrktum við taumgöngu og gekk frábærlega.
Share