Category Archives: Hundaþjálfun

Æfingar á fimmtudögum

Víðavangs æfingar halda áfram eftir sumarfrí. Við æfðum ekkert í júlí vegna ferðalaga og sumarfría. Nú höfum við byrjað aftur og er kominn nýr efnilegur meðlimur í hópinn. Við æfum núna á fimmtudögum í sumar, haust og fram að 1. vetrardegi.

Posted in Hundaþjálfun | Leave a comment

Sumarfrí á enda

Æfingar eftir sumarfrí hefjast að nýju fimmtudaginn næstkomandi 5. ágúst 2010. Næstu tvo mánuði, ágúst og september, munum við æfa vikulega á fimmtudags kvöldum. Æft verður í spori og víðavang, leiðbeinandi er Elías. Áhugasamir um þáttöku geta haft samband við hann í síma 898-1298.

Posted in Hundaþjálfun | Leave a comment

Fyrir sumarfrí

Allir meðlimir voru mættir í kvöld og gengu æfinga vel. Ekkert óvænt kom uppá og góðar styrkingar hjá leitarhundunum. Því miður þar æfingahópurinn að fara í frí. Við æfum ekkert í júlí og hittumst aftur helgina eftir verslunarmannahelgi.  

Posted in Hundaþjálfun | Leave a comment

Horft á lyktina

Ágætlega heppnuð víðavangsæfing í kvöld – 20. júní. Undanfarið höfum við notað reykbombur til að stúdera hvernig lykt læðist í loftinu. Í kvöld var æft að þola haglabyssu-hvelli. Svo kom óvæntur gestur sem hefur æft í björgunarsveit og hann kom skemmtilega á óvart, eftir mjög langa hvíld frá æfingum.

Posted in Hundaþjálfun | Leave a comment

reglulegar æfingar

Síðan æfingar hófust að nýju í lok apríl hafa þær verið haldnar reglulega eða í hverri viku. Við höfum hist á sunnudags kvöldum í nágrenni höfuðborgarinnar og æft víðavangsleit og sporaleit. Allir hundar hafa sýnt góðar framfarir eigendum sínum til ánægju. Æfingar fara þannig fram að eigendahópurinn ber saman bækur sínar, hvað hafi verið gert síðast og hvað skuli gera á æfingunni. Hundar fá upphitun fyrir æfinguna og er góður … Lesa meira

Posted in Hundaþjálfun | Leave a comment

25 apríl

Fyrsta alvöru æfingin okkar á árinu, eftir góða pásu í vetur. Æft var í víðavang. Allir mættu sem voru boðaðir og æfingar tókust framar vonum. Hundar sem höfðu verið í hvíld höfðu greinilega engu gleymt og nýliðar stóðu sig frábærlega. Sem fyrr hefur verið greint frá er leiðbeinandi hættur að skrifa skýrslu um hvern hund. Ef hundeigandi vill skrifa skýrslu þá er aðgangur að blogg kerfinu öllum opinn.

Posted in Hundaþjálfun | Leave a comment