Efnisflokkar
-
Nýlegar færslur
Category Archives: Hundanámskeið
Dagskrá haust 2011
Við æfum leitarhundana tvisvar í viku út september. Æft er á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 20. Við leggjum áherslu á hundafimi, hlýðni og hverfaleit en eitthvað líka á spor og víðavang. Helgarnámskeið eru haldin mánaðarlega og stundum tvisvar í mánuði. Við tökum engan biðlista lengur. Ef tveir eða fleiri eru á skrá höldum við námskeið. Einfalt, fljótvirkt, árángursríkt. Upplýsingar, Guðjón Elías í síma 898-1298
Posted in Fréttir, Hundanámskeið
Leave a comment
Enginn biðlisti
Þar sem við höldum námskeið í hverjum mánuði í Hafnarfirði er nærri því enginn biðlisti og engin lágmarks þáttaka. Ef við erum með tvo eða fleiri hunda á lista, þá höldum við námskeiðið, hvernig sem viðrar. Mikilvægt er að hafa með sér góðan taum að lágmarki 1.5 metrar á lengd. Einnig er nauðsynlegt að hafa með sér nammi sem hundurinn þinn elskar. Lágmarksaldur hjá hvolpum er 3ja mánaða – en … Lesa meira
Posted in Hundanámskeið
Leave a comment
Námskeið í Grindavík
Helgarnámskeiðin eru byrjuð úti á landi. Við hófum sumarið í Grindavík helgina 20. til 22. maí og var vel heppnað að venju. Stefnan er tekin á allan hringinn í sumar og haust. Við ætlum að heimsækja aftur alla staði sem við fórum á í fyrra og bæta við nokkrum í viðbót. Við erum langt komnir með að raða niður á helgar í júní, júlí, ágúst og september. Hægt er að … Lesa meira
Posted in Hundanámskeið
Leave a comment
Námskeið
Við ætlum að hafa námskeið í Hafnarfirði um mánaðamótin nóv/des næstkomandi. Nánar hér.
Posted in Hundanámskeið
Leave a comment
Viðurkenningarskjal
Við vorum ekkert búin að spá í viðurkenningu á námskeiðum okkar hjá bæjarfélögum. Þess vegna höfum við ekki gefið út viðurkenningarskjöl í lok námskeiða. Nú er svo að eitt og eitt bæjarfélag hefur gefið afslátt á hundagjaldi vegna námskeiðs hjá okkur. Þess vegna höfum við útbúið viðurkenningu sem við útbýtum í lok hvers námskeiðs. Ef þú hefur verið á námskeiði hjá okkur þá geturðu fengið slíkt skjal sent í pósti. … Lesa meira
Posted in Hundanámskeið
Leave a comment
Helgarnámskeið
Við höfum nú stillt upp námskeiða áætlun fyrir Suðurland, Vesturland og Norðurland í ágúst og september. Við dreifðum auglýsingu á þessi svæði 3. ágúst og gengur skráning vel. Einnig eru reglulega haldin vikunámskeið á Höfuðborgarsvæðinu. Öll námskeið eru haldin úti við. Áhugasamir geta haft samband í síma 898-1298 eða með tölvupósti.
Posted in Hundanámskeið
1 Comment

