Efnisflokkar
-
Nýlegar færslur
Tenglar
Category Archives: Greinar
Banna hundategundir
Sumar hundategundir eru bannaðar með lögum frá Alþingi. Þetta eru stórir hundar sem ræktaðir eru sem varð- og árásarhundar. Það er ekki tilefnið hér að gagnrýna lagasetningu Alþingis. Í dag birtist forsíðugrein á Fréttablaðinu sem skoða mér Hér. Þar er fjallað um skoðun Hundaræktarfélags Íslands (HRFÍ) á hundahaldi og hundamenningu á landinu. Við lesturinn fær maður á tilfinninguna að HRFÍ hafi eitthvað að gera með lög og reglur um hundahald … Lesa meira
Vandamála hundurinn
Ég hef ekki lengur tölu á þeim vandamála hundum sem ég hef hjálpað. Stundum er hringt í mig sem leiðbeinanda hjá Hundasport – símanúmerið mitt er víða á vefsíðunni. Stundum er hringt í mig því einhver sem áður hefur leitað til mín vísar á mig. Stundum er það einhver úr kunningjahópnum. Það er til haugur af góðum ráðum til að hjálpa hundum sem eiga erfitt. Sumir hundar gjamma á ókunnuga. … Lesa meira
Posted in Greinar
Leave a comment
Móðursýkin
Eitt Einu sinni kom tík til mín í pössun yfir langa helgi. Eigandinn vildi komast með konu sinni í helgarferð. Börnin voru hjá ömmu og afa en tíkin kom til mín. Hún var þá átján mánaða. Ég átti bara einn hund það árið og var það tæplega ársgömul tík. Frá því gesturinn kom inn fyrir dyrnar og þar til hún fór fjórum dögum síðar var stöðugur leikur í gangi. Þær … Lesa meira
Posted in Greinar
Leave a comment
Ást
Hundurinn þinn elskar þig, aldrei máttu efast um það. Þú elskar hundinn þinn jafn mikið og þú elskar sjálfan þig. Hundurinn þinn mun reyna eins og hann getur að líkjast þínum innri manni. Sértu grimm sál, sama hversu vingjarnlegur þú ert við annað fólk, þá mun hundurinn þinn tileinka sér grimmlyndi. Þegar þér líður illa, og fyrir kemur að okkur líður illa án þess að taka eftir því, mun hundinum … Lesa meira
Posted in Greinar
Leave a comment
Hundaofbeldi
Við erum líklega öll sammála um að rangt sé að beita hunda og önnur dýr ofbeldi. Það er ljótt að sjá manneskju misþyrma besta vini sínum, í tilgangslausu reiðikasti. Það er líka ljótt að breiða út lýgi um aðra, að segja að hinn eða þessi berji dýrin sín sé það ósatt. Hundar geta ekki sagt ósatt en fólk kann það. Hundar sýna ávallt á atferli sínu ef þeir eru beittir … Lesa meira
Posted in Greinar
Leave a comment
Að þjálfa hundinn sinn
Hundar eru krútt, á því leikur enginn vafi og það er gaman að þeim. Þeir eru alltaf í góðu skapi, þeir elska að kúra, leika og að fara í útivist. Þeir fyrirgefa auðveldlega og fylgja manni skilyrðislaust. Síðustu ár hefur hundaeign aukist mjög í borg og bæ á Íslandi. Mikið hefur verið innflutt af smærri tegundum sem henta vel í kaupstað. Foreldrar vilja að börn sín kynnist dýrum og læri … Lesa meira
Posted in Greinar
Leave a comment

