Efnisflokkar
-
Nýlegar færslur
Category Archives: Fréttir
Æfingatímar á nýju ári
Í haust hefur gengið á ýmsu að halda uppi föstum æfingatímum. Því höfum við tilkynnt um æfingar með SMS fyrir hverja æfingu. Það fyrirkomulag verður notað áfram í vetur. Í fyrravetur var æft á hverjum sunnudegi og miðvikudegi. Í sumar var æft í hverri viku en æfingatímar hafðir rúllandi því það hentaði svo mörgum. Nú er að komast föst mynd á æfingatímana í vetur. Fastir tímar eru á fimmtudögum kl … Lesa meira
Posted in Fréttir, Hundaþjálfun
Leave a comment
Ýmsar smábreytingar
Núna í vetrarbyrjun bættist við Helgarnámskeið II í flóruna hjá okkur. Þetta er gert til að geta boðið nemendum af Helgarnámskeið I upp á fleira – enda oft sem fólk vill halda áfram á skemmtilegu námskeiði. Einnig breyttist Vinnuhunda fyrirkomulagið smávegis. Aðal breytingin felst í því hvernig við metum stöðu hunda sem hefja þjálfun og hvernig við metum árangur þeirra. Til að geta gert þjálfun markvissari vinnur hver hundur í … Lesa meira
Posted in Fréttir
Leave a comment
Æfingalotur
Við breyttum æfingaplönum okkar smávegis núna í byrjun vetrar. Breytingin er að sumu leyti smávægileg. Enn sem fyrr æfum við vikulega. Á vetrum er vikulegur æfingatími á hverjum sunnudegi kl. 13. Misjafnt er á vetrum – eftir veðri og vindum – hvort vikuæfingin sé innanbæjar eða utan. Enn fremur er leiðbeinandi tiltækur á hverjum miðvikudegi kl. 1930 fyrir þá sem vilja aukaæfingu. Aukaæfing er ávallt innanbæjar á vetrum og er … Lesa meira
Posted in Fréttir, Hundaþjálfun
Leave a comment
Vetrartími
Nú fer vetrartími í hönd hjá æfingahópnum. Síðan í ágústbyrjun höfum við æft á mánudags- og fimmtudags kvöldum. Yfirleitt er nóg að æfa vikulega og segja má að vikulegi æfingatíminn hafi verið fimmtudagar en á mánudögum sé aukaæfing. Meðlimir í hópnum eru mjög áhugasamir um æfingar, enda eru þær skemmtilegar og gefandi. Hundarnir eru til í að æfa daglega en mannfólkið þarf að sinna svo mörgu öðru. Í vetur verður … Lesa meira
Posted in Fréttir
Leave a comment
Æfingatímar – haustið 2011
Venjulega æfum við um helgar á vetrum en á virkum dögum á sumrin. Yfirleitt höfum við alltaf sömu æfingadagana á hverri árstíð. Í vor prófuðum við að hafa rúllandi æfingadaga. Þannig var ákveðið á hverri æfingu hvenær næsta æfing væri. Oftast fór það svo að stundum var æft tvisvar í viku. Reyndar hefur það verið þannig allt þetta ár að við æfum að meðaltali sex sinnum í mánuði. Fólk biður … Lesa meira
Posted in Fréttir
Leave a comment
Æfingahópur í Eyjafirði
Við erum nú búin að stofna æfingahóp norður á Akureyri. Fyrsta æfingin á svæðinu fór fram fyrir viku síðan og var æft bæði í spori og víðavang. Einn leiðbeinenda okkar býr núna fyrir norðan og stendur fyrir reglulegum æfingum. Fleiri nýjunar eru á döfinni hjá okkur en við hófum í sumar að þjálfa Efnaleitir. Efnaleit er hið sama og Fíkniefnahundar nota, nema við notum efni úr eldhúsinu.
Posted in Fréttir, Hundaþjálfun
Leave a comment
Dagskrá haust 2011
Við æfum leitarhundana tvisvar í viku út september. Æft er á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 20. Við leggjum áherslu á hundafimi, hlýðni og hverfaleit en eitthvað líka á spor og víðavang. Helgarnámskeið eru haldin mánaðarlega og stundum tvisvar í mánuði. Við tökum engan biðlista lengur. Ef tveir eða fleiri eru á skrá höldum við námskeið. Einfalt, fljótvirkt, árángursríkt. Upplýsingar, Guðjón Elías í síma 898-1298
Posted in Fréttir, Hundanámskeið
Leave a comment

