Víðavangs æfingar halda áfram eftir sumarfrí.
Við æfðum ekkert í júlí vegna ferðalaga og sumarfría. Nú höfum við byrjað aftur og er kominn nýr efnilegur meðlimur í hópinn. Við æfum núna á fimmtudögum í sumar, haust og fram að 1. vetrardegi.
Æfingar eftir sumarfrí hefjast að nýju fimmtudaginn 5. ágúst næstkomandi.
Næstu tvo mánuði, ágúst og september, munum við æfa vikulega á fimmtudags kvöldum. Æft verður í spori og víðavang, leiðbeinandi er Elías. Áhugasamir um þáttöku geta haft samband við hann í síma 898-1298.
ShareAllir meðlimir voru mættir í kvöld og gengu æfinga vel. Ekkert óvænt kom uppá og góðar styrkingar hjá leitarhundunum.
ShareÁgætlega heppnuð víðavangsæfing í kvöld – 20. júní. Undanfarið höfum við notað reykbombur til að stúdera hvernig lykt læðist í loftinu. Í kvöld var æft að þola haglabyssu-hvelli. Svo kom óvæntur gestur sem hefur æft í björgunarsveit og hann kom skemmtilega á óvart, eftir mjög langa hvíld frá æfingum.
ShareSíðan æfingar hófust að nýju í lok apríl hafa þær verið haldnar reglulega eða í hverri viku.
Við höfum hist á sunnudags kvöldum í nágrenni höfuðborgarinnar og æft víðavangsleit og sporaleit. Allir hundar hafa sýnt góðar framfarir eigendum sínum til ánægju.
Æfingar fara þannig fram að eigendahópurinn ber saman bækur sínar, hvað hafi verið gert síðast og hvað skuli gera á æfingunni. Hundar fá upphitun fyrir æfinguna og er góður tími tekinn fyrir æfingu á hverjum hundi.
Aðeins er einn hundur æfður í senn og fylgjast allir eigendur með hverri æfingu. Þetta síðasta er mikilvægt því við lærum ekki síður af vinnu hinna hundanna en okkar eigin.
ShareÍ kvöld voru vel heppnaðar víðavangs æfingar og spora-æfing hjá æfingahópnum. Marktækar framfarir voru hjá hundum frá síðustu æfingu.
ShareFyrsta alvöru æfingin okkar á árinu, eftir góða pásu í vetur. Æft var í víðavang.
Allir mættu sem voru boðaðir og æfingar tókust framar vonum. Hundar sem höfðu verið í hvíld höfðu greinilega engu gleymt og nýliðar stóðu sig frábærlega.
Sem fyrr hefur verið greint frá er leiðbeinandi hættur að skrifa skýrslu um hvern hund. Ef hundeigandi vill skrifa skýrslu þá er öllum aðgangur að blogg kerfinu öllum opinn.
ShareVið höfum látið æfingar liggja niðri í febrúar og mars en erum nú að byrja aftur á fullum krafti.
Frá og með 25. apríl verður æft á sunnudags morgnum í víðavangs- og sporaleit. Í sumar verða þessar æfingar færðar á fimmtudags kvöldin frá júní byrjun fram í ágúst lok.
Fram að sumartíma verður einnig æft á fimmtudags kvöldum að mestu innanbæjar í hlýðni, atferli og hverfaleit.
Þannig verður æft tvisvar í viku fram í byrjun júní en aðeins vikulega í sumar. Fólk hefur vafalaust nóg að gera í garðvinnu og ferðalögum í sumar. Í haust verður aftur æft tvisvar í viku.
Mælt er með að nota póstlistann til að skrá sig á æfingar. Sem fyrr má hringja í leiðbeinandann í síma 898-1298 til að fá frekari upplýsingar.
Eftirfarandi þarf að hafa í huga fyrir þá sem hafa áhuga:
Eins og í vetur munum við gera kröfu um ástundun. Æfingar af þessu tagi skila sér ekki nema æft sé reglulega. Þeir sem ekki treysta sér til að æfa 3svar í mánuði eða oftar ættu að snúa sér annað. Þá er árgjald 5.000 krónur.
Að gefnu tilefni þarf að benda á að við leggjum mikinn metnað í þessar æfingar. Þáttakendur þurfa að vera tilbúnir til að taka allri leiðsögn vel og vera tilbúnir til að leggja dálítið á sig.
ShareVið ætlum í stutta hlýðni æfingu á föstudags kvöldið 13. nóvember. kl 20:00.
Sömuleiðis verður hefðbundin víðavangsæfing – og kannski hverfaæfing – á sunnudaginn 15. nóvember kl 1430.
Þeir sem ætla að mæta þurfa að staðfesta í sms í síma 898-1298.
Við minnum á póstlistann fyrir þá sem vilja ekki missa af æfingum.
ShareÆft var í blíðviðri sunnan Hafnarfjarðar. Hist var 1430 og ekið í svæði. Leiðbeinandi Elías.
Æft var í víðavang, bonderingu, leit að hlut, hlýðni og sækja/skila.
Sem fyrr segir erum við hætt að skrásetja í bloggið hverjir mæta og hvað er gert. Foringi hvers hunds sér sjálf(ur) um að skrá eigin æfingar ef áhugi er fyrir því.
Sem fyrr segir getur hver sem er – hvort sem þú ert í Hundasport eða ekki – stofnað blog síðu hér fyrir hundinn sinn.
Share