Æfingatímar á nýju ári

Í haust hefur gengið á ýmsu að halda uppi föstum æfingatímum. Því höfum við tilkynnt um æfingar með SMS fyrir hverja æfingu. Það fyrirkomulag verður notað áfram í vetur.

Í fyrravetur var æft á hverjum sunnudegi og miðvikudegi. Í sumar var æft í hverri viku en æfingatímar hafðir rúllandi því það hentaði svo mörgum.

Salka kann Spor, Víðavang og Teymisleit.

Nú er að komast föst mynd á æfingatímana í vetur. Fastir tímar eru á fimmtudögum kl 19:00. og má hringja í leiðbeinanda (778-1296) til að forvitnast um staðsetningu hverrar æfingar.

Ekki er ennþá kominn fastur æfingatími á helgarnar og sms listinn dugar að sinni fyrir þær.

Rétt er að minna á að símatíminn hjá leiðbeinendum er frá 24:00 til miðnættis frá sunnudegi til laugardags. Það er betra að hringja ef vandamál koma upp en að láta vandamálin vaxa.

 

About Guðjón Elías Hreinberg

Guðjón Elías hefur æft leitarhunda vikulega síðan í september 2007. Hann hefur kennt mörg helgarnámskeið á landsbyggð og aðstoðað fjölda hunda þess utan. Hann er alinn upp með hundum og hefur lært af færum hundamönnum hérlendis og á Írlandi. Hann lætur hundana ávallt hafa síðasta orðið í deilunni um hvaða aðferð henti best. Þar sem gagnrýni er vinsæl á Íslandi, fær hann sinn skammt - en lætur hundana sína svara allri gagnrýni. Hegðun þeirra og kunnátta segir allt sem segja þarf.
This entry was posted in Fréttir, Hundaþjálfun. Bookmark the permalink.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>