Ýmsar smábreytingar

Núna í vetrarbyrjun bættist við Helgarnámskeið II í flóruna hjá okkur. Þetta er gert til að geta boðið nemendum af Helgarnámskeið I upp á fleira – enda oft sem fólk vill halda áfram á skemmtilegu námskeiði.

Einnig breyttist Vinnuhunda fyrirkomulagið smávegis. Aðal breytingin felst í því hvernig við metum stöðu hunda sem hefja þjálfun og hvernig við metum árangur þeirra. Til að geta gert þjálfun markvissari vinnur hver hundur í 12 vikna lotu.

Lotukerfið virkar þannig að hundur sem byrjar í reglulegri þjálfun fær vinnubók í upphafi. Leiðbeinandi metur á fyrstu æfingu hvar hundurinn er staddur, í samráði við eiganda hans. Þá er hundinum sett markmið fyrir þá lotu, aftur í samráði við eiganda. Í lok lotunnar er metið hvort hundurinn hafi náð markmiði sínu og hvar hann sé staddur og það skráð í vinnubók. Matið í lokin færist svo áfram í næstu lotu, ef eigandi heldur áfram þjálfun.

Lotkukerfi auðveldar eigendum hunda að meta hvar þeir eru staddir í þjálfun. Þá er betra fyrir leiðbeinendur að fylgjast með þroska hundsins því hver æfing er skráð í vinnubókina. Í lok lotunnar fær hundurinn viðurkennignarskjal með viðeigandi upplýsingum.

Þetta auðveldar eiganda enn fremur að meta sjálfur hvar hann er staddur í vinnuþjálfun og gefur fastari ramma fyrir alla þjálfun. Með þessari breytingu bættist örlítill kostnaður á æfingar sem stillt er í hóf eins og hægt er.

 Ertu of fullorðinn til að fara í feluleik? Þjálfun leitarhunds er svipað feluleik. Hundur sem klárað hefur tvær til þrjár lotur finnur alltaf týnda manninn.

About Guðjón Elías Hreinberg

Guðjón Elías hefur æft leitarhunda vikulega síðan í september 2007. Hann hefur kennt mörg helgarnámskeið á landsbyggð og aðstoðað fjölda hunda þess utan. Hann er alinn upp með hundum og hefur lært af færum hundamönnum hérlendis og á Írlandi. Hann lætur hundana ávallt hafa síðasta orðið í deilunni um hvaða aðferð henti best. Þar sem gagnrýni er vinsæl á Íslandi, fær hann sinn skammt - en lætur hundana sína svara allri gagnrýni. Hegðun þeirra og kunnátta segir allt sem segja þarf.
This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>