Æfingalotur

Við breyttum æfingaplönum okkar smávegis núna í byrjun vetrar. Breytingin er að sumu leyti smávægileg. Enn sem fyrr æfum við vikulega. Á vetrum er vikulegur æfingatími á hverjum sunnudegi kl. 13. Misjafnt er á vetrum – eftir veðri og vindum – hvort vikuæfingin sé innanbæjar eða utan.

Enn fremur er leiðbeinandi tiltækur á hverjum miðvikudegi kl. 1930 fyrir þá sem vilja aukaæfingu. Aukaæfing er ávallt innanbæjar á vetrum og er þá styrkt fimi, hverfaleit og annað sem þykir viðeigandi fyrir hvern hund.

Um leið erum við hætt að nota Facebook grúppuna til að tilkynna um næsta æfingastað. Þáttakendur hafa – eins og í gamla daga – samband við leiðbeinanda til að fá upplýsingar um næsta æfingastað. Reynslan af þeirri aðferð hefur gefið góða raun.

Aðal breytingin sem nú er tekin upp er að hver hundur vinnur í 12 vikna lotum og kostar lotan hæfilegt gjald. Í hverri lotu stefnir hundur að markmiði sem valið er í samráði við leiðbeinanda. Á hverri æfingu er skráð í æfingabók hvað hundurinn gerði á þeirri æfingu.

Í lok lotunnar er metið hvort – eða hvernig – hver hundur hafi náð sínu markmiði og honum gefin umsögn. Hver hundur byrjar þannig sína lotu á persónulegu nótunum. Þannig þurfa ekki allir hundar að vera í sömu lotu á sama tíma heldur er hver og einn í sínu eigin æfingaplani.

Þessi nálgun okkar er gerð til að styrkja þann ramma sem hver hundur æfir eftir. Þar með verða markmið og vinnubrögð hvers hundateymis skýrari og haldið betur utan um þau. Leiðbeinendur vinna einnig í 12 vikna lotum með sína hunda.

Áfram verður stefnt á að halda smánámskeið öðru hvoru á borð við fyrirlestra frá dýralæknum, nuddnámskeið og annað eftir atvikum.

About Guðjón Elías Hreinberg

Guðjón Elías hefur æft leitarhunda vikulega síðan í september 2007. Hann hefur kennt mörg helgarnámskeið á landsbyggð og aðstoðað fjölda hunda þess utan. Hann er alinn upp með hundum og hefur lært af færum hundamönnum hérlendis og á Írlandi. Hann lætur hundana ávallt hafa síðasta orðið í deilunni um hvaða aðferð henti best. Þar sem gagnrýni er vinsæl á Íslandi, fær hann sinn skammt - en lætur hundana sína svara allri gagnrýni. Hegðun þeirra og kunnátta segir allt sem segja þarf.
This entry was posted in Fréttir, Hundaþjálfun. Bookmark the permalink.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>