Nú fer vetrartími í hönd hjá æfingahópnum.
Síðan í ágústbyrjun höfum við æft á mánudags- og fimmtudags kvöldum. Yfirleitt er nóg að æfa vikulega og segja má að vikulegi æfingatíminn hafi verið fimmtudagar en á mánudögum sé aukaæfing.
Meðlimir í hópnum eru mjög áhugasamir um æfingar, enda eru þær skemmtilegar og gefandi. Hundarnir eru til í að æfa daglega en mannfólkið þarf að sinna svo mörgu öðru.
Í vetur verður því svipað fyrirkomulag og síðasta vetur. Opinbera æfingin verður á sunnudögum eftir hádegi en aukaæfing á miðvikudögum. Sama fyrirkomulag verður og venjulega: Leiðbeinandi ákveður næsta æfingastað og þarf að hringja í hann til að fá upplýsingar um staðinn. Venjulega er tilkynning um “næstu æfingu” sett á Facebook grúppuna en hún er bara fyrir virka meðlimi.
Sem fyrr eru æfingar ókeypis og öllum opnar.
Við minnum á að einnig er í boði að æfa á norðurlandi.

