Við höfum nú stillt upp námskeiða áætlun fyrir Suðurland, Vesturland og Norðurland í ágúst og september. Við dreifðum auglýsingu á þessi svæði 3. ágúst og gengur skráning vel.
Einnig eru reglulega haldin vikunámskeið á Höfuðborgarsvæðinu. Öll námskeið eru haldin úti við.
Áhugasamir geta haft samband í síma 898-1298 eða með tölvupósti.
About Guðjón Elías Hreinberg
Guðjón Elías hefur æft leitarhunda vikulega síðan í september 2007. Hann hefur kennt mörg helgarnámskeið á landsbyggð og aðstoðað fjölda hunda þess utan.
Hann er alinn upp með hundum og hefur lært af færum hundamönnum hérlendis og á Írlandi. Hann lætur hundana ávallt hafa síðasta orðið í deilunni um hvaða aðferð henti best.
Þar sem gagnrýni er vinsæl á Íslandi, fær hann sinn skammt - en lætur hundana sína svara allri gagnrýni. Hegðun þeirra og kunnátta segir allt sem segja þarf.