Núna í september verður fyrsta höfuðborgar námskeiðið okkar. Kennt verður fimm kvöld á virkum dögum, 19:30 – 21:00, mánudag til miðvikudag fyrri vikuna og mánudag og þriðjudag seinni vikuna.
Einnig verðum við á tveim stöðum á norðurlandi í september og hugsanlega á þeim þriðja.
Víðavangs- og sporaæfingar ganga vel. Við höfum verið að æfa á fimmtudags kvöldum í sumar. Í haust munum við færa okkur yfir á sunnudagana. Við hlökkum til að taka til við vetraræfingar og er margt skemmtilegt á dagskránni þar.
About Guðjón Elías Hreinberg
Guðjón Elías hefur æft leitarhunda vikulega síðan í september 2007. Hann hefur kennt mörg helgarnámskeið á landsbyggð og aðstoðað fjölda hunda þess utan.
Hann er alinn upp með hundum og hefur lært af færum hundamönnum hérlendis og á Írlandi. Hann lætur hundana ávallt hafa síðasta orðið í deilunni um hvaða aðferð henti best.
Þar sem gagnrýni er vinsæl á Íslandi, fær hann sinn skammt - en lætur hundana sína svara allri gagnrýni. Hegðun þeirra og kunnátta segir allt sem segja þarf.